1½ bolli hveiti
Smá salt, pínu klípa ;)
125 gr smjör, skorið í litla bita
1 eggjarauða
smá vatn (uþb 3 msk) Continue reading
Bökudeig (Shortcrust pastry)
Karamellu klessukaka
200 gr smjör, skorið í litla bita
200 gr hvítt súkkulaði
200 gr púðursykur
1 msk síróp Continue reading
Mars súkkulaði kornflakes nammi
ca 200 gr mars súkkulaði (ég keypti stóra pakkningu í Bónus sem inniheldur 7*45 gr stykki og notaði 5 svoleiðis)
50 gr ósaltað smjör
Um 100 gr kornflakes.
Bræddu smjörið á mjög lágum hita. Skerðu marsið í litla bita og bættu því útí pottinn og bræddu þetta vel saman, hrærir í öðru hvoru. Blandan á að vera lin en ekki fljótandi…..hún verður að vera það lin að hún þekji kornflögurnar. Ef blandan er of þykk þá bara bætirðu smá smjöri saman við til að þynna hana.
Þegar þú ert búin að bræða þetta vel saman þá bætirðu korflögunum útí og hrærir varlega í til að mölva þær ekki :)
Hrærir bara til að þekja flögurnar
Svo er spurning um að hafa snör handtök (því blandan storknar) og skeiða þetta í muffins form eða litla hóla á bökunarpappír og setja svo í kæli í ca hálftíma.
Þetta er HRIKALEGA gott !!
Piparbuff
800 gr nautahakk,hrært með 2 eggjarauðum og 2 dl rjóma. Mótið buff og steikið.
Græn piparsósa.
2 litlir perlulaukar brúnaðir á pönnu, 4 dl hvítvín (ekki sætt) og 4 dl soð blandað saman við ásamt smá smjöri,soðið niður í ca 10 mín. Rjóma bætt saman við og soðið þar til þykknar,3-4 græn piparkorn ,2 tsk franskt sinnep,nokkrir tabasco dropar til bragðbætis.
Kjöthleifur
1 kg nautahakk
1 bolli haframjöl
1 lítil ds tómatpúrra
1 smátt saxaður laukur
2 egg
salt og pipar e.smekk.
Hrært saman. Sett í form og bakað við 200 gráður í 45 mín.

