Svínalundir með sveskjum

800 gr svínalundir
ca 4 msk rjómaostur með sólþurrkuðum tómötum
ca 16 sveskjur (mjúkar og steinlausar)
salt og pipar
olía til að steikja úr
2 dl svínakjötskraftur úr teningi
1 dl rjómi
ögn af sósulit 

Lundunum er skipt í 4 bita. Skorin er vasi í þá og er rjómaosti smurt þar í og sveskjurnar lagðar yfir. Lokað með tannstönglum og brúnaðir í góðri olíu á vel heitri pönnu á öllum hliðum og saltað og piprað.
(Má brjóta af stönglunum ef þeir eru fyrir).
Þá er hitinn lækkaður og kjötsoði hellt á pönnuna. Látið sjóða undir loki í ca 15 mín. fer eftir þykkt bitana.
Að síðustu er rjómanum hrært út í ásamt sósulit. Má þykkja ef vill.
Gott meðlæti eru sætar kartöflur, soðnar og stappaðar með smjöri og ögn af salti. Ferskt salat á líka vel við.


Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s

%d bloggers like this: