100 gr Lion bar
100 gr saxað suðusúkkulaði
150 gr púðursykur
80 gr smjörlíki
1 egg
160 gr hveiti
1/4 tsk natron
½ tsk salt
1 tsk vanilludropar Allt hrært vel saman, lion bar sett saman við síðast smátt saxað. Sett á bökunarpappír með teskeið uþb ½-1 tsk í hverja köku. Hafið bil á milli því þær renna dálítið út. Bakaðar í ca 8 mín við 180 gráður. EF þær eru of lengi í ofninum verða þær grjótharðar.
20/11/2011
Leave a Reply