- 1 rúllutertubrauð
- 1 dós sýrður rjómi
- 2 msk. létt majones
- 100 g pepperoní, skorið í bita
- 1 rauðlaukur, smátt saxaður
- 1 dl ólífur, saxaðar
- ítölsk kryddblanda eða pastakrydd
- salt og pipar að smekk
- c.a. 100 g rifinn ostur
Blandið saman sýrðum rjóma, majonesi, pepperoni, rauðlauk og ólífum. Kryddið og saltið og piprið að smekk. Smyrjið blöndunni yfir rúllutertubrauðið, rúllið því upp og dreifið rifnum osti yfir. Bakið í 20 mínútur við 180 gráður.
Leave a Reply