Fiskdeig

1 kg hakkaður fiskur
50 gr hveiti
50 gr kartöflumjöl
2 dl mjólk
3 egg
2 meðalstórir laukar
2 tsk salt
1 tsk hvítur pipar

Best er að nota ýsu, en einnig má nota þorsk, karfa eða annan fisk. Sláið saman egg og mjólk. Blandið saman þurrefnum. Saxið laukinn mjög fínt ef matreiða á soðnar fiskbollur eða fiskbúðing, en ívið grófar ef steikja á fiskbollur. Blandið þurrefnum og eggjahræru til skiptis í deigið og hrærið vel. Loks er lauknum hrært saman við. Látið deigið standa undir loki á köldum stað í a.m.k. klukkustund. Hægt að gera úr þessu fiskibollur eða fiskhleif.


Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s

%d bloggers like this: