5 dl krækiber
1 dl sykur
2 epli
1 pk. sítrónuhlaup
2 dl sjóðandi vatn
5 dl Rice Krispies
1 dl hunang
1 dl brætt smjör
1 stór dós hreint skyr
2 egg
1 peli rjómi
1. Setjið krækiberin á fat og stráið sykri yfir, merjið berin örlítið saman við sykurinn, t.d. með kartöflustappara. Afhýðið eplin og rífið gróft, setjið saman við krækiberin. Látið bíða í 1 klst.
2. Leysið hlaupduftið upp í 2 dl af sjóðandi vatni, helmingi minna en segir á umbúðum. Kælið án þess að hlaupi saman.
3. Bræðið saman smjör og hunang, t.d. í örbylgjuofni. Hrærið Rice Krispies saman við. Setjið á botninn á djúpu flatbotna fati eða skál með stórum flötum botni.
4. Þeytið eggin saman við skyrið. Blandið kældri hlaupblöndunni út í, síðan krækiberja/eplablöndunni og loks þeyttum rjómanum. Hellið varlega ofan á fatið með Rice Krispies. Setjið í kæliskáp og látið vera þar í 46 klst. eða lengur.
5. Berið fram með kaffi eða sem ábætisrétt.
Leave a Reply