Skinkuhorn

100 gr. smjör/smjörlíki
900 gr. hveiti
60 gr. sykur
1/2 tsk. salt
1/2 lítri mjólk
1 pakki þurrger
Fylling:
1 pakki/túpa skinkumyrja
ostur og skinkubitar
Penslun:.
Egg eða mjólk og einhver fræ t.d. sesamfræ.

Blandið saman þurrefnunum. Hitið mjólkina rétt volga 37 gráður.Bræðið smjörlíkið í potti og bætið við mjólkina , þessu svo saman við þurrefnin og hnoðið.

Látið lyfta sér í 40-60 mín. á volgum stað (viskustykki yfir deiginu) Hnoðið aftur og látið lyfta sér í 30 mín. Skiptið deginu í fimm hluta. Hvern hluta á að fletja út í hring og skipta í 8 hluta (alveg eins og gert er með pizzur) setja ca. 1/2 – 1 tsk af skinkumyrju á hvern hluta og rúlla upp í horn.  Getur bætt við skinkubita og rifnum osti.. Pensla með mjólk og strá fræum ofan á (má sleppa). Bakist við 200°C þangað til hornin eru orðin ljósbrún ca. 20 mín.

Það er líka mjög gott að skipta skinumyrjunni út fyrir dijon sinnep J


Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s

%d bloggers like this: