2-3 ýsuflök
1 poki Hrísgrjón
smá gulrætur
1 paprika
smá blómkál
steiktir sveppir
steiktur rauðlaukur
ostur
Sósa:
1 beikonsmurostur
1 hvítlaukssmurostur
rjómi
Sjóðið hrísgrjónin og setjið þau í eldfast mót.
Skerið fiskinn í bita og raðið ofáná.
Stráið gulrótinni,papriku og blómkáli.
Steikið því næst sveppina og laukinn og setjið ofaná.
Bræðið sósuna saman í potti og hellið yfir og setjið ostinn yfir alveg í restina. Setjið inn í ofn á 180° í c.a 30 mín.
Leave a Reply