4 stk eggjarauður
80 gr sykur
1 stk vanillustöng
1 tsk vanilludropar
5 stk matarlímsblöð
½ líter rjómi, léttþeyttur
niðursoðnar perur
1½ dl rjómi
200 gr súkkulaði, smátt saxað.
Þeytið eggjarauðurnar með sykrinum þar til létt og ljóst, skafið kornin úr vanillustönginni og setjið saman við ásamt dropunum.
Setjið matarlímið í kalt vatn í ca 5 mín, leysið svo límið upp með 2 msk af vatni. Setjið matarlímið saman við þeytinguna og blandið svo rjómanum varlega saman við. (þessum léttþeytta)
Hitið 1½ dl af rjóma að suðu og hellið yfir smátt saxað súkkulaðið, blandið rólega saman þar til fallegur glans er kominn á súkkulaðið.
Setjið eina peru (hálfa) í glas, setjið ca 2 msk af súkkulaðinu yfir peruna og hellið svo frómasinum yfir. Setjið í kæli og látið standa í amk 3 klst eða yfir nótt.
Leave a Reply