Fyrir ykkur sem þekkið Jóa Fel klattana, þá eru þessir betri.
a)
1,25 bollar hveiti/spelt (ég notaði spelt)
1 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
1/2 tsk kanill
b)
1 bolli smjör (lint)
1/2 bolli sykur/hrásykur (ég notaði hrásykur)
1 bolli púðursykur
2 tsk vanillusykur/vanillukorn (ég notaði vanillusykur)
2 egg
c)
3 bollar haframjöl
200 gr rúsínur
Aðferð:
• Blandið a) saman í skál.
• Hrærið b) saman í aðra skál. Fyrir þetta þarf vél eða þeytara.
• Blandið a) og b) saman í skál. Það þarf nokkuð stóra skál, sérstaklega ef gerð er tvöföld uppskrift.
• Bæti c) við blöndu a) og b).
• Á þessu stigi er deigið enn nokkuð blautt.
• Búið til kúlur í höndunum, ca. á stærð við tómata, setjið á plötu og fletjið lítillega út. Ca 9 stykki á plötu. Athugið að klattarnir stækka í ofninum.
• Bakið í miðjum ofni við 200° í svona ca 7-8 mínútur. Crucial að baka ekki of lengi. Þeir eiga rétt að byrja að vera brúnir. Ekki láta ykkur bregða þó klattarnir séu enn dúnmjúkir eftir baksturinn. Leyfið þeim að kólna, og þá dökkna þeir aðeins og harðna.
• Útúr tvöfaldri uppskrift fást 45 klattar, þ.e. 5 heilar plötur.
Leave a Reply