Steiktur hvítlaukskjúklingur

Omm nomm nommmmmm

Þessi réttur er hriiiiiiikalega góður og vinsæll meðal barnana á mínu heimili Smile

1 kjúklingur
nýmalaður pipar (ég nota sítrónupipar)
salt
1 sítróna
42 hvítlauksgeirar (3 heilir ca)
½ l vatn
kjúklingakraftur eftir þörfum
sósujafnari

Hitaðu ofninn í 200°C.  Kryddaðu kjúklinginn að utan og innan með pipar og salti.  Skerðu nokkrar örþunnar sneiðar úr miðri sítrónunni, losaðu haminn frá neðanverðri bringunni – það er mjög auðvelt – og smeygðu sítrónusneiðunum inn undir hann.  Losaðu einn hvítlaukinn sundur í geira, flysjaðu þá og settu inn í kjúklinginn.  Settu kjúklinginn í eldfast fat, kreistu afganginn af sítrónusafanum yfir og steiktu í hálftíma.

Losaðu hvítlaukana sem eftir eru sundur í geira og flysjaðu þá.  Dreifðu þeim í kringum kjúklinginn og helltu vatninu í fatið.  Steiktu áfram í 45-60 mínútur, eða þar til kjúklingurinn er steiktur í gegn og tær safi rennur út ef stungið er í lærið þar sem það er þykkast.

Taktu kjúklinginn út og halltu honum heitum.  Helltu soðinu og hvítlauknum í pott og hitaðu að suðu.  Bragbættu soðið með kjúklingakrafti, pipar og salti eftir smekk og þykktu það ögn með sósujafnara – en sósan á alls ekki að vera þykk.

Rosalega gott með fersku salati og bökuðum kartöflum.

About these ads

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 47 other followers